Combat NATO eru mjög létt, öflug og fjölhæf ferðaskíði fyrir fjallaferðir eða veiðar. Þau eru þróuð fyrir hermenn til að ferðast um í krefjandi landslagi á hraða við fjölbreyttar aðstæður og eru með stálköntum og 22 mm hliðarskurði.
Þessi utanbrautarskíði eru stöðug og fljóta vel í djúpum snjó. Þau eru hönnuð til að standast allt sem fjallaferðir geta boðið upp á.
Að velja rétta lengd á skíðin
Lengd skíða er ákvörðuð eftir líkamsþyngd og hæð.
Taflan hér að neðan er þó aðeins viðmið - en reynsla, kunnátta, landslag og einstaklingsbundnar þarfir eru allt þættir sem geta haft áhrif á hvaða lengd ætti að verða fyrir valinu.
Almennt séð kallar það á styttri skíði þegar verið er að hreyfa sig um krefjandi landslag en á opnu fjalllendi. Það er einnig auðveldara fyrir byrjendur að stjórna stuttum skíðum. Ef þú ert aðallega á skíðum í brautum er lengdin ekki mikilvægasti þátturinn. Ef þú vilt gott flot í djúpum snjó þá geta aðeins breiðari skíði verið gagnleg. Léttari skíðamenn gætu hugsað sér styttri skíði; þyngri skíðamenn lengri skíði. Skíðafólk sem er að ferðast með mikið af dóti s.s. bakpoka og sleða gæti einnig viljað hafa lengri skíði.
Ef þú ætlar að kaupa skíði á netinu þá mælum við með því að þú fáir ráðgjöf um val á skíðum í síma 419-7300 eða sendir tölvupóst á sportval@sportval.is
Þú getur einnig pantað tíma í mátun með því að senda okkur póst á sportval@sportval.is
Stærðartafla - viðmið (dömur og herrar)
Hæð (cm) | Þyngd (kg) | Lengd skíða |
-160 | -60 | 170 cm |
160-170 | 55-70 | 180 cm |
170-180 | 65-85 | 190 cm |
1780-190 | 75-90 | 200 cm |
190- | 90- | 210 cm |