Ef þú vilt flott skíði, þá eru þessi eitthvað sem þú ættir að skoða.
Breið og ofurlétt ferðaskíði sem eru hönnuð fyrir ævintýri á fjöllum og eru tilvalin fyrir lengri ferðir í krefjandi og bröttu landslagi. Falketind 62 Xplore utanbrautarskíðin eru einnig með ríkulegum hliðarskurði sem gerir þau frábær í beygjum.
Skíðin eru með Skinlock, svo það er hægt að smella á þau X-Skin hálfskinnum sem læsast samstundis á sínum stað þegar klifrað er.
Að velja rétta lengd á skíðin
Lengd skíða er ákvörðuð eftir líkamsþyngd og hæð.
Taflan hér að neðan er þó aðeins viðmið - en reynsla, kunnátta, landslag og einstaklingsbundnar þarfir eru allt þættir sem geta haft áhrif á hvaða lengd ætti að verða fyrir valinu.
Almennt séð kallar það á styttri skíði þegar verið er að hreyfa sig um krefjandi landslag en á opnu fjalllendi. Það er einnig auðveldara fyrir byrjendur að stjórna stuttum skíðum. Ef þú ert aðallega á skíðum í brautum er lengdin ekki mikilvægasti þátturinn. Ef þú vilt gott flot í djúpum snjó þá geta aðeins breiðari skíði verið gagnleg. Léttari skíðamenn gætu hugsað sér styttri skíði; þyngri skíðamenn lengri skíði. Skíðafólk sem er að ferðast með mikið af dóti s.s. bakpoka og sleða gæti einnig viljað hafa lengri skíði.
Ef þú ætlar að kaupa skíði á netinu þá mælum við með því að þú fáir ráðgjöf um val á skíðum í síma 419-7300 eða sendir tölvupóst á sportval@sportval.is
Þú getur einnig pantað tíma í mátun með því að senda okkur póst á sportval@sportval.is
Stærðartafla - viðmið (dömur og herrar)
Hæð (cm) | Lengd skíða |
165-177 | 172 cm |
175-185 | 180 cm |
183-192 | 188 cm |