Fjölhæf og traust ferðaskíði sem henta vel fyrir fólk sem tekur hundana sína með í gönguferðir eða leiðangra á fjallasléttum, jafnvel með bakpoka eða sleða í eftirdragi. Skíðin eru án stálkanta svo þau eru örugg fyrir loppur.
Skíðin eru með Skinlock, svo hægt er að smella á þau X-Skin skinnum á augabragði til að klifra. Við mælum með X-Skin Mohair 45mm fyrir kalt veður og flatara landslag en fyrir blautan snjó, krefjandi aðstæður og brattara landslag ætti 45 mm Synthetic X-Skin að duga.
Hundurinn sem er á myndinni á skíðunum heitir „Akiak“ og er Alaska Husky. Þú getur fundið hann á Instagram: @akiakthehusky
Að velja rétta lengd á skíðin
Lengd skíða er ákvörðuð eftir líkamsþyngd og hæð.
Taflan hér að neðan er þó aðeins viðmið - en reynsla, kunnátta, landslag og einstaklingsbundnar þarfir eru allt þættir sem geta haft áhrif á hvaða lengd ætti að verða fyrir valinu.
Almennt séð kallar það á styttri skíði þegar verið er að hreyfa sig um krefjandi landslag en á opnu fjalllendi. Það er einnig auðveldara fyrir byrjendur að stjórna stuttum skíðum. Ef þú ert aðallega á skíðum í brautum er lengdin ekki mikilvægasti þátturinn. Ef þú vilt gott flot í djúpum snjó þá geta aðeins breiðari skíði verið gagnleg. Léttari skíðamenn gætu hugsað sér styttri skíði; þyngri skíðamenn lengri skíði. Skíðafólk sem er að ferðast með mikið af dóti s.s. bakpoka og sleða gæti einnig viljað hafa lengri skíði.
Ef þú ætlar að kaupa skíði á netinu þá mælum við með því að þú fáir ráðgjöf um val á skíðum í síma 419-7300 eða sendir tölvupóst á sportval@sportval.is
Þú getur einnig pantað tíma í mátun með því að senda okkur póst á sportval@sportval.is
Stærðartafla - viðmið (dömur og herrar)
Hæð (cm) | Þyngd (kg) | Lengd skíða |
150-160 | -60 | 170 cm |
160-170 | 60-75 | 180 cm |
170-180 | 70-85 | 190 cm |
180-190 | 80-95 | 200 cm |
190+ | 95+ | 210 cm |