Fullkomin ferðaskíði sem henta vel fyrir fólk sem tekur hundana sína með í ferðir, hvort sem það er til að veiða eða sem félagsskap á fjöllum. Skíðin eru án stálkanta svo þau séu örugg fyrir loppur.
Kongsvold utanbrautarskíðin eru stöðug skíði, það er auðvelt að beygja á þeim auk þess sem þau eru með gott flot í dýpri snjó. Skíðin eru stíf yfir miðjuna sem gerir það að verkjum að þú getur tekið þau allt að 10 cm styttri en önnur ferðaskíði.
Að velja rétta lengd á skíðin
Lengd skíða er ákvörðuð eftir líkamsþyngd og hæð.
Taflan hér að neðan er þó aðeins viðmið - en reynsla, kunnátta, landslag og einstaklingsbundnar þarfir eru allt þættir sem geta haft áhrif á hvaða lengd ætti að verða fyrir valinu.
Almennt séð kallar það á styttri skíði þegar verið er að hreyfa sig um krefjandi landslag en á opnu fjalllendi. Það er einnig auðveldara fyrir byrjendur að stjórna stuttum skíðum. Ef þú ert aðallega á skíðum í brautum er lengdin ekki mikilvægasti þátturinn. Ef þú vilt gott flot í djúpum snjó þá geta aðeins breiðari skíði verið gagnleg. Léttari skíðamenn gætu hugsað sér styttri skíði; þyngri skíðamenn lengri skíði. Skíðafólk sem er að ferðast með mikið af dóti s.s. bakpoka og sleða gæti einnig viljað hafa lengri skíði.
Ef þú ætlar að kaupa skíði á netinu þá mælum við með því að þú fáir ráðgjöf um val á skíðum í síma 419-7300 eða sendir tölvupóst á sportval@sportval.is
Þú getur einnig pantað tíma í mátun með því að senda okkur póst á sportval@sportval.is
Stærðartafla - viðmið (dömur og herrar)
Hæð (cm) | Þyngd (kg) | Lengd skíða |
160-165 | -65 | 170 cm |
165-175 | 65-75 | 180 cm |
175-185 | 75-90 | 190 cm |
185-195 | 90+ | 200 cm |