Liv BC ferðaskíðin frá Åsnes eru hönnuð í nánu samstarfi við Liv Arnesen, fyrstu konuna til að ná á suðurpólinn án nokkurs stuðnings, og eru fullkominn kostur fyrir langar vetrarferðir með bakpoka eða sleða í eftirdragi. Þau eru einnig frábær fyrir konur sem eru að skipuleggja leiðangra á fjöll eða jökla.
Skíðin eru með góðum stálköntum 2,1x1,9mm sem bíta í harðan snjó og þola krefjandi aðstæður. Þau eru einnig með raufum til að festa hálfskinn á áburðarflötin. Þessi utanbrautarskíði fást ekki með rifflum.
Liv Arnesen er konum mikil fyrirmynd þegar kemur að löngum skíðaferðum. Hún var ein af fyrstu konum heims til að ganga á skíðum á Suðurskautinu auk þess sem hún og Julie Maske voru fyrstu konurnar til að þvera Grænlandsjökul á skíðum. Liv var lengi leiðsögumaður á Svalbarða en er í dag eftirsóttur fyrirlesari og konum mikil hvatning.
Að velja rétta lengd á skíðin
Lengd skíða er ákvörðuð eftir líkamsþyngd og hæð.
Taflan hér að neðan er þó aðeins viðmið - en reynsla, kunnátta, landslag og einstaklingsbundnar þarfir eru allt þættir sem geta haft áhrif á hvaða lengd ætti að verða fyrir valinu.
Almennt séð kallar það á styttri skíði þegar verið er að hreyfa sig um krefjandi landslag en á opnu fjalllendi. Það er einnig auðveldara fyrir byrjendur að stjórna stuttum skíðum. Ef þú ert aðallega á skíðum í brautum er lengdin ekki mikilvægasti þátturinn. Ef þú vilt gott flot í djúpum snjó þá geta aðeins breiðari skíði verið gagnleg. Léttari skíðamenn gætu hugsað sér styttri skíði; þyngri skíðamenn lengri skíði. Skíðafólk sem er að ferðast með mikið af dóti s.s. bakpoka og sleða gæti einnig viljað hafa lengri skíði.
Ef þú ætlar að kaupa skíði á netinu þá mælum við með því að þú fáir ráðgjöf um val á skíðum í síma 419-7300 eða sendir tölvupóst á sportval@sportval.is
Þú getur einnig pantað tíma í mátun með því að senda okkur póst á sportval@sportval.is
Stærðartafla - viðmið (dömur og herrar)
Hæð (cm) | Þyngd (kg) | Lengd skíða |
145-155 | -55 | 170 cm |
155-165 | 55-65 | 175 cm |
165-170 | 60-70 | 180 cm |
170-175 | 70-80 | 187 cm |
175-185 | 75-85 | 194 cm |