Hágæða skrúfjárn og hálkuskrúfur úr hertu stáli sem hægt er að skrúfa í nánast hvaða skó sem er.
Í settinu eru 32 skrúfur og skrúfjárn til að festa þær. Mælt er með 10-12 skrúfum í hvorn skó fyrir hlaup og 8-10 skrúfum fyrir göngu.
Skrúfið í gúmmi en ekki frauðefni miðsólans því gúmmísólinn heldur betur í skrúfuna. Ekki er mælt með því að setja skrúfurnar í þunnbotna skó því þá er hætta á að þú finnir fyrir skrúfunum.